Tb forsíða neðri
Osushi opnar nýjan stað í Borgartúni
Borgarbúar hafa fengið sannkallaða matarást á veitingastaðnum Oshushi í Iðuhúsinu við Lækjargötu sem býður upp á ljúffenga og litríka sushi-bita á færibandi. Nú hafa eigendurnir, systkinin Anna Þorsteinsdóttir og Kristján Þorsteinsson, fært út kvíarnar og opnað nýjan og glæsilegan Osushi-stað í Borgartúni 29. Þegar inn er komið bíða spennandi sushi-bitarnir í röðum á færibandinu. Með þessum hætti sparast dýrmætur tími, t.d. í hádeginu þar sem ekki þarf að bíða eftir afgreiðslu á pöntunum, gestir velja einfaldlega það sem þá lystir af færibandinu. Anna og Kristján segja að vinsældir sushi byggist fyrst og fremst á sameiningu ferskleika og frábærs bragðs. Þess utan samanstandi sushi einungis af hollu og fitusnauðu hráefni:
„Japönsk matargerðarlist nýtur sífellt vaxandi vinsælda í hinum vestræna heimi og hefur slegið í gegn á Íslandi. Sushi er ævintýri fyrir sælkera og unnendur hollustu. Hefðbundið sjávarfang er í boði auk þess sem við bjóðum upp á stick´s.
Sojasósan okkar er að sjálfsögðu japönsk en hún er bæði sætari og bragðmeiri en sú kínverska og ekki eins sölt. Sushi-aðdáendur þekkja svo wasabi; sterka græna piparmaukið, og köldu engiferrótina sem er borin fram til þess að narta í á milli bita og við lok máltíðarinnar,“ segja þau.
Einnig er boðið upp á eftirrétti á færibandinu, t.d. crème brûlée og syndsamlega góða súkkulaðiköku.
Hjá Osushi í Borgartúni er einnig starfrækt „take-away“-þjónusta sem er tilvalin fyrir starfshópa, fyrir fjölskylduna eða bara til þess að njóta einn heima.
Oshushi er opið mánudaga til fimmtudaga frá 11-18.00 og föstudaga frá 11-22. Lokað laugardaga og sunnudaga.


