Tb forsíða neðri
Biblíumatur í Neskirkju á fimmtudögum
Neskirkja stendur fyrir spennandi uppákomu í hádeginu næstu fimmtudaga en þá verður eldaður biblíumatur í eldhúsi kirkjunnar. Jesús var veislumaður en hvers konar mat borðaði hann og hverjar eru matarhefðirnar í Biblíunni? Sr. Sigurður Árni Þórðarson og Ólafía Björnsdóttir elda matinn og var fyrsta máltíðin 16. október sl. þar sem boðið var upp á kjúklingarétt Maríu í Nasaret. Spennandi framtak hjá starfsfólki Neskirkju. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu kirkjunnar www.neskirkja.is.


