Tb forsíða neðri

nyslatrad

Njótum haustsins

 

 

 

Tólfta tölublað Gestgjafans er nú væntanlegt og það verður áfram á haustnótunum líkt og "Berjablaðið" sem nú er orðið uppselt hjá útgefanda. Við höldum upp á Ár kartöflunnar með veglegum kartöfluþætti, eldum ódýrt og athugum enn frekar hvað hægt er að gera við öll berin, og þá aðallega rifsber, sem nóg er af þetta haustið. Nú liggur fyrir okkur að útbúa frábært klúbbablað og við höfum þegar fengið að heimsækja nokkra vinahópa sem hittast reglulega og borða gómsæta rétti.

Það sem okkur er þó efst í huga á þessari stundu er sláturtíðin sem nú er að hefjast. Úlfar er að prófa nýja rétti úr lambakjöti af nýslátruðu og lætur innmatinn ekki liggja á milli hluta heldur eldar frábæra og nýstárlega rétti úr þessu bragðgóða og ódýra hráefni. Sirrý er í óðaönn að útbúa magnaðan sláturþátt þar sem gömlu handbrögðin verða m.a. sýnd en þessum klassíska þjóðarrétti okkar verður gert hátt undir höfði og kynslóðabilið brúað í sláturgerðinni. Sannarlega spennandi tímar framundan. 

 

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður