Tb forsíða neðri
Ferðahelgi og ný uppskera framundan
Fyrstu kartöflurnar voru teknar upp fyrir stuttu og í tilefni af því bauð Úlfar Eysteinsson á Þremur Frökkum matgæðingum til kartöfluveislu þar sem bragðað var á uppskerunni. Kartöflurnar komur frá Birki Ármannssyni bónda á Vestur-Holti í Þykkvabæ og voru af gerðinni premier. Nýjar íslenskar kartöflur eru nú komnar í flestar verslanir.
Við á Gestgjafanum erum þegar byrjuð að leika okkur með nýju kartöflurnar en afraksturinn verður birtur í 11. tölublaði okkar sem gengur undir nafninu „Græna blaðið“. Þar verður áherslan lögð á gjafir jarðar sem jafnan eru að ná fullum þroska um það leyti sem blaðið kemur út.
Næst á dagskrá er hins vegar 10. tölublað sem kemur í verslanir nokkru fyrir verslunarmannahelgina. Af því tilefni skoðum við t.d. hvað er sniðugt að hafa með sér í útilegur, hvernig best er að undirbúa matargerðina áður en lagt er af stað og birtum hagnýta minnislista fyrir þá sem hyggja á langferðir. Blað sem enginn sannur útilegu-Íslendingur ætti að láta framhjá sér fara.


