Tb forsíða neðri
Gissur Guðmundsson kjörinn forseti alheimssamtaka matreiðslumanna
Gissur Guðmundsson varð þess heiðurs aðnjótandi að vera kjörinn forseti alheimssamtaka matreiðslumanna á þingi samtakanna í Dubai fyrir skömmu. Gissur er þar með kominn í hóp fræga fólksins og kominn á toppinn í sínu fagi. Hann á það vel skilið því hann hefur gefið íslensku samtökunum krafta sína í langan tíma auk þess sem hann hefur liðsinnt erlendum samtökum eftir föngum. Hann var formaður samtakanna hér á landi í mörg ár. Til hamingju Gissur!


