Tb forsíða neðri

skoda

Grillblaðið: Á bak við tjöldin

 

Við á Gestgjafanum þurfum auðvitað alltaf að vinna svolítið fram í tímann og þar sem grillblaðið okkar kemur út í lok maí er ekki alltaf auðvelt að finna ósvikið grillveður, gróður í blóma og sólskin á þeim tíma sem við erum að mynda fyrir blaðið. Undanfarin ár hefur oftar en ekki snjóað þegar við ætlum að grilla en að sama skapi eru rigning og hlýindi vandamál þegar við útbúum jólablaðið. Í ár ákváðum við að tryggja okkur gegn skakkaföllum af völdum veðurs og fengum góðfúslegt leyfi til að mynda nokkra af grillþáttunum okkar í Blómavali í Skútuvogi. ulfar

 

Úlfar kokkur, Gerður stílisti og Kristinn ljósmyndari héldu því til í Skútuvoginum einn dag og grilluðu, stíliseruðu og mynduðu eins og þau ættu lífið að leysa. Árangurinn mun birtast í grillblaðinu sem kemur út 22. maí en blaðið inniheldur yfir 130 spennandi uppskriftir, t.d. fisk, naut, lamb, kjúkling og grís á grillið, kryddlegi, grillsósur, meðlæti, kryddsmjör, drykki og himneska eftirrétti til að toppa gómsætar grillmáltíðir.

 

gerdurKristinn

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður