Tb forsíða neðri
Forsíðumynd Gestgjafans
Íslenskur fiskur
Forsíða 5. tbl. Gestgjafans er með nokkuð óvenjulegu sniði en í stað hefðbundinnar myndar af elduðu góðgæti má sjá einn vinsælasta matfisk okkar Íslendinga, ýsuna. Inni í blaðinu má svo sjá fleiri myndir af heilum, ferskum, íslenskum fiski sem þeir hjá Fiskisögu voru svo elskulegir að útvega okkur. Karl Petersson á heiðurinn að þessum fallegu ljósmyndum en hann brá á leik með fiskana og rennbleytti stúdíóið í leiðinni.




