Tb forsíða neðri

Fodur&fjor_landsbyggd

Food & Fun ... loksins á landsbyggðinni

Dagana 21. – 24. febrúar nk. verður mikil hátíðarstemmning á landsbyggðinni í tilefni af Food & Fun, sem við köllum á ástkæra og ylhýra ... Fóður og fjör.

Ellefu hótel og veitingastaðir í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman undir merkjum Food & Fun og bjóða upp á lífsstílshátíð sem á sannarlega eftir að lífga upp á skammdegið. Gestakokkar; innlendir og erlendir, elda íslenskan mat, það verða uppákomur, leiklist, tónlist og glæsileg veitinga- og gistitilboð, ekkert er til sparað svo hátíðin verði sem glæsilegust. Hver staður hefur eigin sérstöðu, sinn matseðil og dagskrá.

Undanfarin ár hefur Food & Fun eingöngu verið í höfuðborginni en nú er brugðist við þeirri sjálfsögðu kröfu að færa hátíðina einnig út á land til að fleiri fái notið hennar. Fjölmörg veitingahús og hótel á landsbyggðinni eru með opið allan ársins hring og þar er vel menntað og þjálfað starfsfólk sem leggur mikinn metnað í starf sitt. Íslensk náttúrufegurð er einstök, ekki síst yfir vetrartímann.

Styrktaraðilar hátíðarinnar eru m.a. Flugfélag Íslands, Viðskiptaráðuneytið, Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið, Útflutningsráð, Ferðamálastofa og bæjarfélög.

Eftirtaldir taka þátt í Food & Fun á landsbyggðinni:

Vestfirðir:

Veitingastaðurinn við Pollinn, Ísafirði.

Norðurland:

Friðrik V., Akureyri.

Sel – Hótel Mývatn, Skútustöðum.

Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit.

Austurland:

Hótel Hérað, Egilsstöðum.

Hótel Höfn, Höfn.

Suðurland:

Hótel Rangá, Hellu.

Rauða húsið, Eyrarbakka.

Vesturland:

Hótel Glymur, Hvalfirði.

Landnámssetur Íslands, Borgarnesi.

Hótel Hamar, Borgarnesi.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður