Tb forsíða neðri

trainn

Þráinn Freyr, Matreiðslumaður ársins 2007

 

Úrslitakeppnin um titilinn Matreiðslumaður ársins 2007 var haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri helgina 13.-14. október. Fimm keppendur börðust um titilinn; Ari Freyr Valdimarsson - Grillinu Hótel Sögu, Eyjólfur Gestur Ingólfsson - Iðusölum, Þórarinn Eggertsson - Múlakaffi, Þráinn Freyr Vigfússon - Grillinu Hótel Sögu og Ægir Friðriksson, Grillinu Hótel Sögu. Sverrir Halldórsson matreiðslumeistari og Stefán Viðarsson á Hilton Nordica sáu um dómgæslu í eldhúsi. Keppnisfyrirkomulag var svokölluð "Óræða karfan", eða "Mistery basket" á ensku, en það þýðir að keppendur fengu í hendur hráefni sem valið var fyrir þá við upphaf keppninar.

Úrslit fóru þannig að Þráinn Freyr Vigfússon, Grillinu Hótel Sögu, hlaut titilinn Matreiðslumaður ársins, í öðru sæti var Eyjólfur Gestur Ingólfsson, Iðusölum, og í því þriðja var Þórarinn Eggertsson, Múlakaffi.

Matvælasýninginn Matur-inn 2007 stóð yfir þessa sömu helgi og þar sýndu framleiðendur á Norðurlandi afurðir sínar og buðu fólki að smakka og kaupa á góðu verði.

Dómarar í keppninni voru þeir Jakob Magnússon - Horninu, Gissur Guðmundsson - Tveim Fiskum, Ragnar Ómarsson - Domo, Brynjar Eymundsson - Glitni og Kjartan Kjartansson - Hótel Loftleiðum, en þeir dæmdu í svokölluðu blindsmakki.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður