Tb forsíða neðri

matarkista

Matarkistan Skagafjörður

 

Landbúnaðarsýningin Sveitasæla 2007 var haldin á Sauðárkróki í lok sumars. Þar stóðu matvælafyrirtæki, ferðaþjónustuaðilar og sveitarfélagið Skagafjörður saman að kynningu á matvælaframleiðslu héraðsins undir nafninu „Matarkista Skagafjarðar“. Kynningin vakti mikla lukku meðal gesta sem nutu þess að fá að smakka góðgæti úr matarkistu Skagafjarðar.

     Á setningarathöfninni var gestum t.d. boðið upp á nýsteiktar, skagfirskar pönnukökur frá Áskaffi. Þeir réttir sem vöktu mesta athygli voru hvannarsúpa frá veitingastaðnum Undir byrðunni sem löguð var úr íslenskri hvönn, skagfirskt hrossakjöt með sojamaríneringu frá Kaffi Krók og fjóluís með rjómaostaköku og nýtíndum aðalbláberjum frá mæðgunum í Lónkoti. Fleiri réttir voru á boðstólum t.d. sítrusmaríneraðar rækjur frá Dögun með snittubrauði frá Sauðárkróksbakaríi, grafið skagfirskt naut í bláberja-tímíansósu og bleikja frá Hólalaxi auk þess sem Mjólkursamlag KS bauð upp á ostasmakk alla helgina en samlagið er í fremstu röð í ostagerð í landinu.

Kynningarsvæði Matarkistu Skagafjarðar var eitt það vinsælasta á sýningunni og ljóst að þarna hefur verið stigið fyrsta skrefið að öflugu samstarfi Matarkistunnar og sveitarfélagsins sem vonandi á eftir að eflast í framtíðinni.

     Í Skagafirði er augljóslega mikið um að vera þegar kemur að matvælaframleiðslu, veitingum og ferðaþjónustu og ljóst að ýmislegt spennandi leynist í matarkistunni sem forvitnilegt er fyrir matgæðinga að skoða.

 

 

Eftirfarandi fyrirtæki eru þátttakendur í Matarkistu Skagafjarðar: Kaffi Krókur, Ólafshús, Hótel Varmahlíð, Veitingastaðurinn Undir byrðunni, Lónkot, Áskaffi, KS Varmahlíð, Sauðárkróksbakarí, Kjötafurðastöðin KS, Mjólkursamlag KS, rækjuvinnslan Dögun, Hólalax, Kjötkrókur, Sólvík, Skagfirðingabúð, Hlíðarkaup, Hótel Tindastóll og FISK-Seafood.

 

Mynd: Jón Þór Bjarnason

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður