Tb forsíða neðri
Uppselt í sælkeraferð Express ferða og Gestgjafans til Berlínar
Öll sæti bókuð í sælkeraferð Express ferða og Gestgjafans til Berlínar 19.-22. október
Berlín er tvímælalaust ein forvitnilegasta borg álfunnar enda seldist upp í sælkeraferð Express ferða og Gestgjafans sem farin verður 19.-22. október nk. Fararstjóri verður Kjartan Ólafsson matgæðingur Gestgjafans en hann mun leiða forvitna ferðalanga á flott og framandi veitingahús og veita fræðslu um mat og menningu. Auk sameiginlegra sælkerakvöldverða verða í boði skoðunarferð um borgina undir leiðsögn og gönguferð um "hulda heima" Austur-Berlínar. Það verður sannarlega margt að sjá, heyra og bragða í þessari ferð.


