Tb forsíða neðri

35_Restaurant-KuDamm

SÆLKERAFERÐ TIL BERLÍNAR 19.-22. OKTÓBER.

SÆLKERAFERÐ EXPRESS FERÐA OG GESTGJAFANS TIL BERLÍNAR 19.-22. OKTÓBER.

SÆLKERAFERÐ EXPRESS FERÐA OG GESTGJAFANS TIL BERLÍNAR 19.-22. OKTÓBER.

Verð fyrir lesendur Gestgjafans: 56.400 kr.

Fararstjóri: Kjartan Ólafsson matgæðingur.

Vegna sívaxandi vinsælda Berlínar og geysilegs úrvals rómaðra veitingastaða í borginni hafa Express Ferðir og Gestgjafinn ákveðið að bjóða lesendum Gestgjafans upp á einstaka ferð til Berlínar undir leiðsögn Kjartans Ólafssonar matgæðings og annars af tveimur veitingahúsarýnum blaðsins.

Berlín er tvímælalaust ein forvitnilegasta borg álfunnar, ekki síst fyrir vöxt hennar og viðgang eftir fall múrsins 1989. Saga borgarinnar er saga hæstu hæða og mestu niðurlæginga sem ein borg getur orðið fyrir.

Boðið verður upp á skoðunarferðir um borgina þar sem saga hennar er rakin og farið á athyglisverðustu staðina undir leiðsögn sérfróðs fararstjóra.

24Einnig verða í boði á laugardags- og sunnudagskvöldið sameiginlegir sælkerakvöldverðir á frábærum veitingastöðum.

Föstudaginn 19. október verður flogið beint til Berlínar kl. 15:20 og áætlunarbíll flytur farþega á Park Inn hótelið sem er á Alexanderplatz í austurhluta borgarinnar. Þetta er 4* hótel og staðsetningin er hreint frábær – stutt í sögufræga staði og rómað veitingahúsahverfi sem upplagt er að skoða eftir að komið er á hótelið um kl. 21:00.

Laugardaginn 20. október verður boðið upp á skoðunarferð um borgina sem stendur yfir í 4 klukkustundir. Fararstjóri er Freyja Gunnlaugsdóttir klarinettleikari sem búið hefur í Berlín í mörg ár.

Um kvöldið verður sameiginlegur sælkerakvöldverður á veitingastaðnum Hugo á Intercontinental-hótelinu en staðurinn hefur hlotið Michelin-stjörnu auk frábærra dóma hinna ýmsu fagtímarita.

Sunnudaginn 21. október verður farið í gönguferð um „hulda heima“ Austur-Berlínar með viðkomu á spennandi kaffihúsum og „pöbbum“ þar sem hægt er að gæða sér á pylsum og bjór að hætti Berlínarbúa.

Sameiginlegur sælkerakvöldverður um kvöldið.

Mánudagur 22. október. Dagurinn verður frjáls enda upplagt að líta í verslanir. Hópurinn byrjar á að fara saman í stærstu matvöruverslun Þýskalands í elsta og virtasta verslunarhúsi landsins sem kallast KADEWE eða Kaufhaus des Westens. Matvörubúðin á efstu hæð er eins og fótboltavöllur og þar er hægt að gleyma sér við að skoða hið gríðarlega úrval áhugaverðrar og sjaldséðrar matvöru.

Brottför frá hóteli verður kl. 18:30 og brottför flugs kl. 21:00.

Verð á mann í tvíbýli er 56.400 kr. og innifalið er flug með sköttum, akstur til og frá flugvelli, gisting á 4* hóteli með morgunverði og íslensk fararstjórn.

 

Nánari upplýsingar er að finna á www.expressferdir.is eða í síma 590 0100.

 

 

 

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður