Flokkaðar greinar
Château Haut Bourcier ****1/2
Magnað Bordeaux á góðu verði
Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu. Þetta Château er í stærra lagi, 30ha, og vínið er blanda af merlot (90%) á móti cabernet sauvignon (10%).
Vínið er fíngert og elegant, ungt og aðlaðandi, með góða fyllingu og er mjög mikið Bordeaux með afar skemmtilegan persónuleika. Það er vel opið (2006 er verulega góður árgangur), ferskt og ávaxtaríkt í nefi og svo gómsætt í munni með fíngert tannín, mátulega kröftugt, fullt af ferskum, svörtum kirsuberjum, keim af krækiberjum og bláberjum, kryddjurtum og sveppum og með vott af ristaðri eik. Allt er í frábæru jafnvægi og eftirbragðið er langt þar sem ristaðir tónar, mokkakaffi og sveppatónar fylgja með ávextinum. Mjög aðgengilegt og einstaklega fágað og flott. Drekkið við 18-20°C, ekki stofuhita!
Verð: 2.192 kr.
Okkar álit: Magnað Bordeaux fyrir ekki meira verð, fágað, ferskt, aðgengilegt og mátulega kröftugt. Jólavín með hreindýri eða nautasteik – og lambinu.


