Flokkaðar greinar
Messias Vintage 1982
Quinta do Cachão ****1/2
Hér er sjálfur Messias á ferð og í þetta sinn fæddist hann árið 1982. Árgangurinn var umdeildur og ekki er algengt að sjá árgangsportvín frá þessu ári. Hins vegar vorum við bæði sammála því að hér væri á ferðinni vel heppnað portvín sem er nú orðið 26 ára gamalt en á alveg slíkt hið sama eftir í geymslu. Vínið þarf að anda til að losna við sveppalyktina sem stuðar mann fyrst en eftir svolitla öndun kemur margslunginn ilmur af hindberjum, jarðarberjum, þurrkuðum ávöxtum, hnetum og dökku súkkulaði. Þroskað en enn þá ferskt. Áferðin er kraftmikil með margslunginn karakter og frábæra lengd. Það sem kemur mest á óvart er krafturinn og ferskleikinn sem maður á ekki von á í 26 ára gömlu víni! Drekkið þegar enginn sér til, svo þið þurfið ekki að deila ...
Verð 6.520 kr.
Góð kaup: Fágað en kraftmikið í senn. Margslungið hugleiðsluvín sem þarf að anda aðeins. Namm!


