Flokkaðar greinar

talenskar_fiskibollur

Tælenskar fiskibollur

Einfaldur veislumatur

 

Látið það ekki hræða ykkur frá uppskriftinni þó innihaldslistinn sé langur. Mest af honum er krydd og allt er sett í matvinnsluvél – 1, 2 og 3 og allt tilbúið. Þessar bollur eru mjög skemmtileg tilbreyting frá þessum gömlu góðu. Þær sóma sér einnig vel á veisluborð sem hluti af fingrafæði og þá má hafa þær litlar eða á stærð við valhnetur.

 

1 stilkur sítrónugras, sneiddur eða börkur af 1 límónu

4 cm bútur af engiferrót, sneiddur

2 hvítlauksgeirar

1 msk. kaffir límónulauf, fást í Asían, eða 2 lárviðarlauf

5 msk. ferskt kóríander, saxað

1 ferskt rautt chili-aldin

800 g roð- og beinlaus fiskur í stórum bitum eða fiskihakk

1 tsk. salt

80 g kókosmjöl

3-4 msk. olía

 

Setjið sítrónugras, engifer, hvítlauk, límónulauf, ferskt kóríander og chili í matvinnsluvél og blandið vel saman. Bætið fiski og salti út í og maukið vel saman. Bætið kókosmjöli út í og blandið vel saman, passið samt að ofhræra ekki. Formið bollur og hafið þær aðeins flatar. Steikið í heitri olíu.

 

Sósa:

1 msk. sesamfræ ristuð á þurri pönnu

2 msk. sesamolía

2 msk. límónusafi

2 msk. tamari-sojasósa

1 msk. hunang

½ rautt chili-aldin smátt saxað

 

Blandið öllu saman og berið fram með bollunum. Gott er að bera núðlur fram með.

 

Dominique og Eymar mæla með grüner veltliner frá Austurríki, t.d. Brundlmayer eða Lenz Moser.

 

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Útlitshönnun