Flokkaðar greinar
Súkkulaðiterta
- á þremur hæðum
Þessir kökubotnar eru mjög góðir. Ef þið notið óbleikt hveiti verður hún svolítið hærri en ef þið notið spelt. Það er líka gott að blanda þessum tegundum saman. Ef þið viljið ekki nota egg getið þið notað vatn eingöngu og þá 3 dl af því. Einnig má setja deigið í tvö örlítið stærri form en þá þarf að baka botnana aðeins lengur eða í u.þ.b. 20 mín. Kremið er mjög hollt. Tofu er þvílík hollustufæða og þeir sem smökkuðu á því við gerð kökunnar fannst það bragðast eins og góður búðingur en það má einmitt alveg nota það þannig. Fyrir þá sem ekki leggja í tofu-ið er gott að bræða 150 g dökkt súkkulaði, bæta 1 dós af stofuheitum sýrðum rjóma saman við ásamt 1-2 msk. af hlynsírópi og 1 tsk. af vanilludropum og fá alveg einstaklega ljúffengt krem sem er innan „óhollustumarka“.
280 g hveiti eða fínt spelt
45 g kakó
2 tsk. lyftiduft
170 g hrásykur (raw cane sugar)
1/4 tsk. salt
2 stór egg
2 dl vatn
2 msk. eplaedik
3 tsk. vanilludropar
3/4 dl olía
Stillið ofninn á 175°C. Sigtið hveiti, kakó og lyftiduft saman í skál. Bætið sykri og salti út í og blandið vel. Blandið eggjum, vatni, ediki, vanilludropum og olíu í annarri skál og þeytið létt saman. Blandið öllu saman. Smyrjið eða setjið smjörpappír í 3 smelluform, 22 cm í þvermál. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna. Bakið í 15 mín. Losið botnana úr formunum og kælið.
Krem:
1 pakki mjúkt tofu
4 msk. hlynsíróp
3 tsk. vanilludropar
4 msk. kakó
100 g dökkt súkkulaði, brætt
Setjið tofu, síróp og vanilludropa í matvinnsluvél og blandið þar til það verður silkimjúkt. Sigtið kakó út í og blandið vel. Bætið bræddu súkkulaði í og blandið vel saman. Smakkið til eftir smekk. Setjið botnana saman með kreminu á milli og skreytið hana e.t.v. með kókosflögum.


