Flokkaðar greinar
Enate Crianza 2004
****1/2
Enate er ungt og metnaðarfullt vínhús í Somontano á N-Spáni sem hefur fengið frábæra dóma víða um heim. Allir flöskumiðarnir eru málaðir af fremstu málurum Spánar og málverk eftir Victor Mira prýðir þetta Crianza. Vínið er svolítið lokað og þarfnast svolítils súrefnis en í ilmi er að finna krydd, ristaða eik og lakkrís. Hins vegar byrjar ballið á tungunni. Áferðin er fersk og ávaxtarík og vínið hefur góðan kraft. Vínið er þétt miðað við crianza og finna má krydd, þroskaðan ávöxt og lakkrís í munninum. Eftirbragðið er ansi langt og endar á kaffi-, súkkulaði- og kryddtónum, mjög skemmtilegt vín. Jafnvægið, fyllingin, endingin og krafturinn er það sem gerir þetta vín svo spennandi og er það mjög vel gert. Drekkið með kjöt-tapas og þá sérstaklega nautakjöti og verði ykkur að góðu.
Verð 1.570 kr.
Okkar álit: Mikið vín fyrir peninginn, bragðmikið, frá einum fremsta framleiðanda á Norður-Spáni, gott matarvín.


