Á ég að baka tertuna fyrir ykkur?
„Þú getur aldrei fullyrt að þú þekkir nokkra konu til hlítar fyrr en þú hefur bakað brúðkaupstertuna hennar,“ er setning sem ég sá einhvern tíma í umræðum á netinu um brúðkaupstertubakstur. Það er líklega nokkuð orðum aukið en samt er sannleikskorn í þessari fullyrðingu. Brúðkaupstertan skiptir marga – einkum konur – afar miklu og því er mikilvægt að vel takist til og undirbúningur sé góður, svo að allir verði ánægðir.
Lesa meira
Eitthvað gott í klúbbinn
Þótt sumar konur leggi mikið á sig til að bera fram sem flottastar veitingar eru þær mun fleiri sem finnst mikilvægara að vera með einfalda en góða rétti sem tekur fremur stuttan tíma að útbúa. Saumaklúbbar koma oftar en ekki saman í miðri viku og húsmóðirin þarf að útbúa veitingarnar þegar hún kemur heim eftir erfiðan vinnudag.
Lesa meira
Að halda barnaafmæli
Þegar kemur að því að halda barnaafmæli eru margir í stökustu vandræðum með skipulagið og það eru margar spurningar sem vakna. Þetta eru oft fyrstu veislurnar sem ungt fólk stendur fyrir – kannski er það að baka sínar fyrstu kökur á ævinni – og svo er allt hitt sem þarf að hugsa fyrir. Við skulum líta á nokkrar spurningar:
Lesa meira
Brúðkaupsundirbúningurinn er þýðingarmikill
Þegar brúðkaup er á næsta leyti er að mörgu að hyggja. Mestu máli skiptir að hafa nógan tíma fyrir undirbúninginn og mörgum finnst ekki veita af minna en heilu ári ef vel á að vera. Strax í byrjun er nauðsynlegt að ákveða hvers konar brúðkaupsveislu við ætlum að halda og hvenær dagsins hún á að vera en það tengist oft vali á presti og kirkju.
Lesa meira
Fingrafæði
Núna, þegar hægt er að fá alls konar góðar sósur, kryddmauk og fleira sælgæti í verslunum, auk osta, kjötmetis, ferskra kryddjurta og margs annars, er það hvorki vandasamt né tímafrekt verk að útbúa fjöldann allan af flottum og ljúffengum snittum til að bera fram við alls kyns tækifæri.
Lesa meira
Lagt á fermingarborð
Nú nálgast fermingarnar og þá veitir ekki af góðum hugmyndum í sambandi við skreytingar í veislunni. Strákar og stelpur vilja oftar en ekki að hægt sé að sjá greinilega á litavali og skreytingum fermingarborðsins hvort það er strákur eða stelpa sem er að fermast.
Lesa meira
Veitingar í veisluna - nokkur góð ráð
Fyrst af öllu þarf að ákveða hvort þetta á að vera matarveisla með þríréttuðum veislumat, óformlegra matarboð, smáréttahlaðborð, brauðveisla, móttaka með pinnamat eða jafnvel bara gamaldags kökuveisla. Þegar það er komið á hreint er hægt að fara að ákveða matseðilinn og hefja undirbúning.
|nl|
Lesa meira
Litríkt barnaafmæli
Þórunn Högna stílisti leggur mikið upp úr afmælisveislum barna sinna, Birgittu Lífar og Tristans Þórs. Í hvert sinn hefur hún ákveðið þema í huga og er búin að ákveða ráðandi liti í borðskrauti löngu áður en veislan skellur á.
Lesa meira


