Aðrar greinar

Vinningshafi í áskrifendahappdrætti!

Vinningshafi í happdrættinu um námskeið fyrir allt að 10 manns í versluninni Súkkulaði og rósir er: Vignir Arnarson og vitað er að hann ætlar að færa eiginkonunni fréttirnar en hann segir að hún sé algjör snillingur í allri matargerð og súkkulaðifíkill af bestu gerð.

Lesa meira
 

Vinningshafi í netáskrifendahappdrætti Gestgjafans

Í síðasta mánuði fórum við af stað með sérstakt net-happdrætti fyrir áskrifendur Gestgjafans. Vinningurinn var einkar glæsilegur; matreiðslunámskeið á Hótel Holti fyrir allt að 9 manns undir stjórn yfirmatreiðslumannsins Friðgeirs Inga Eiríkssonar sem mun kenna þeim meistarataktana og aðstoða við eldamennskuna Lesa meira
 
lamb2

Hægeldaður lambaframpartur

Þetta er ekkert grín, framparturinn er eldaður í 24 klst. en hentar samt vel fyrir önnum kafið fólk. Skellið frampartinum í ofninn að kvöldi (um það leyti sem þið viljið borða kvöldmatinn daginn eftir) og njótið þess að kvöldmaturinn hefur séð um sig sjálfur á meðan allir voru í vinnunni eða skólanum. Frábær sunnudagssteik fyrir alla daga vikunnar og ekki spillir að stinga hvítlauksgeirunum inn í kjötið til að fá meira bragð. Lesa meira
 
GE-0814-43-0_3

Osushi opnar nýjan stað í Borgartúni

Borgarbúar hafa fengið sannkallaða matarást á veitingastaðnum Oshushi í Iðuhúsinu við Lækjargötu sem býður upp á ljúffenga og litríka sushi-bita á færibandi. Nú hafa eigendurnir, systkinin Anna Þorsteinsdóttir og Kristján Þorsteinsson, fært út kvíarnar og opnað nýjan og glæsilegan Osushi-stað í Borgartúni 29 Lesa meira
 
GE-0814-43-0_6

Matreiðslumaður ársins 2008

Þann 7. október var keppnin um matreiðslumann ársins 2008 haldin í Menntaskólanum í Kópavogi. Keppendur höfðu 5 klst. til að útbúa þriggja rétta máltíð fyrir 10 manns. Keppnin var geysihörð og fá stig skildu keppendur að. Í fyrsta sæti var Jóhann Steinn Jóhannesson frá veitingahúsinu Silfur Lesa meira
 
Fodur&fjor_landsbyggd

Food & Fun ... loksins á landsbyggðinni

Dagana 21. – 24. febrúar nk. verður mikil hátíðarstemmning á landsbyggðinni í tilefni af Food & Fun, sem við köllum á ástkæra og ylhýra ... Fóður og fjör.

Ellefu hótel og veitingastaðir í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman undir merkjum Food & Fun og bjóða upp á lífsstílshátíð sem á sannarlega eftir að lífga upp á skammdegið

Lesa meira
 
Birkir-Armannsson

Kartöflurnar komnar!

Kartöfluuppskera fyrsta dagsins er ekki stór og reynsla undanfarinna ára sýnir að ekki fá allir sem vilja á fyrsta uppskerudegi. Því er bent á að kartöflur verða teknar upp daglega  næstu vikurnar og þær sendar í verslanir jafn óðum. Ættu því allir að geta gætt sér á nýjum íslenskum kartöflum í sumar.  

Lesa meira
 
NKF-TING-Turku-2007

NKF-þing í Finnlandi.

Í maí sl. var þing norrænna matreiðslumanna, eða NKF-þing eins og það er kallað, haldið í Turku í Finnlandi. NKF stendur fyrir Nordisk Kjökkenchef Federation eða Samtök norrænna matreiðslumanna. Þessi þing eru haldin annað hvert ár. NKF eru mjög mikilvæg samtök fyrir norræna matreiðslumenn og ekki síst fyrir þá sem koma frá litlum löndum eins og Íslandi Lesa meira
 
GE-0705-19-01

GRILLRÁÐ

Penslið alltaf létt yfir grillristina með olíu áður en grillað er. Það hindrar að maturinn festist við. Notið aldrei steikingarolíu í úðabrúsum til þess að úða á logandi grill. Það getur orsakað hið mesta bál þar sem brúsarnir innihalda eldfim efni. Lesa meira
 
cream__2

Crème brûlée með Calvados og eplum

Varla er nokkur franskur veitingastaður sem ekki býður upp á eggjaeftirrétt í einhverri mynd. Frakkar nota eggjakrem mikið í tertur og eftirrétti og bera það líka gjarnan fram með epla- og súkkulaðikökum í staðinn fyrir rjómaslettu Lesa meira
 
GE-0609-22-12_3

Íslenskt eldhús

„Íslenskt eldhús“ er eitt af þessum hugtökum sem maður fer allt í einu að heyra úr ýmsum áttum en kemst fljótt að því að fólk á ekkert endilega við sama hlutinn þegar það talar um íslenskt eldhús. Þar með er ég alls ekki að segja að þetta sé innantómt hugtak, langt frá því. Lesa meira
 
GE-0411-08-01_3

Hnallþórur og himneskar tertur

Það er ekki æskilegt að bjóða upp á eintómar marenstertur, rjómatertur og aðrar hnallþórur þegar haldið er kaffisamsæti. Samt er eiginlega ómissandi að hafa eina eða tvær slíkar með á borðinu. Þá er líka betra að þær séu vel valdar og hér koma nokkrar úrvalsgóðar tertur sem ættu að kitla bragðlaukana svo um munar – sætar en þó ekki dísætar, ljúffengar en ekki væmnar, fallegar á borði en ekki ofskreyttar  – sannkallaðar sælkeratertur.

Lesa meira

 
GE-0410-07-21_3

Kryddbrauð og kræsingar

Þegar maður vill bjóða saumaklúbbnum – eða hvaða gestum sem er – upp á eitthvað einfalt, gómsætt og ekkert afskaplega óhollt með kaffinu, þá er tilvalið að baka kryddbrauð eða kryddköku. Lesa meira
 
GE-0411-04-09_3

Dökkleitar dásemdir

Súkkulaði er freisting sem fáir standast. Það er gott eins og það kemur fyrir og svo er afskaplega auðvelt að búa til úr því alls kyns kræsingar; kökur, smákökur og sætabrauð, búðinga, ís, sósur, sælgæti og drykki – það er jafnvel hægt að nota það í ýmsa ósæta rétti. Súkkulaði er til í ýmsum myndum en margir súkkulaðisælkerar eru á því að hið eina sanna súkkulaði sé dökkt, sætbeiskt og afar bragðmikið. Lesa meira
 
GE-0509-68-01_3

Íslenskir sauða- og geitaostar

Á dögunum var boðið til kynningar á íslenskum ostum úr sauða- og geitamjólk í húsakynnum Osta- og smjörsölunnar. Ostarnir voru framleiddir nú í sumar í Mjólkursamlaginu í Búðardal og er framleiðsla þeirra hluti af tilraunaverkefni með vinnslu á afurðum úr sauða- og geitamjólk sem fór af stað í fyrra. Lesa meira
 
GE-0509-63-04_3

Óvænt eðalkaffi í Afríku

Í byrjun þessa árs var haldið fyrsta meistaramót kaffibarþjóna í Kenía. Það sem vekur sérstaka athygli er að þrjár íslenskar konur voru fengnar til að koma keppninni á laggirnar í þessu landi þar sem margir telja að heimsins besta kaffi sé ræktað. Lesa meira
 
GE-0508-09-01_3

Sumarbrauð á sólskinsdegi

Nýbakað brauð er alltaf jafngott og best af öllu ef það er heimabakað. ,,Ég nenni ekki að hanga yfir brauðbakstri á sumrin,” er setning sem ég heyri stundum og get vissulega tekið undir, en málið er bara að brauðbakstur þarf alls ekki að vera tímafrekur og á reyndar helst ekki að vera það. Þvert á móti, við ætlum ekki að baka okkur nein vandræði. Lesa meira
 
GE-0508-51-11_3

Lífið við vötnin

Hjónin Skúli Hauksson og Elsa Pétursdóttir í Útey eru dæmi um samhent hjón sem hafa líf og yndi af vinnunni enda má segja að það séu ákveðin forréttindi að fá að starfa við það sem þau gera. Útey er jörð rétt við Laugarvatn í Bláskógabyggð og þar hafa þau komið upp reykhúsi ásamt því að selja ferskan silung. Þau Skúli og Elsa nýta vel það sem kemur úr vötnunum, Laugarvatni og Apavatni. Lesa meira
 
GE-0507-20-02_3

Salt - nýtt veitingahús

Þann 10. júní sl. tók nýtt hótel til starfa í hjarta Reykjavíkur og hefur það hlotið nafnið Radisson SAS 1919 Hótel. Á jarðhæð hússins er veitingastaðurinn Salt og eru miklar vonir bundnar við hann, enda enginn aukvisi þar í brúnni. Lesa meira
 
GE-0507-64-04_3

Ljúfar lautarferðir

Þegar sól skín í heiði og sumar tekur völd er gaman að fara í lautarferð, hvort heldur er með börnunum, vinum eða ástinni sinni. Lesa meira
 


 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - CMS